06.04.14 - 11:30
Daníel Freyr Jónsson
Nicolas Anelka verður samherji Ronaldinho (Staðfest)

Nicolas Anelka er farinn til Brasilíu.

Mynd: Getty Images

Nicolas Anelka er farinn til Brasilíu.

Mynd: Getty Images
Franski framherjinn Nicolas Anelka hefur samþykkt að ganga í raðir brasilíska liðsins Atletico Mineiro.
Forseti félagsins staðfesti þetta við þarlenda fjölmiðla í morgun, en Anelka hefur verið án félags frá því hann fór frá WBA í síðasta mánuði
Þessi skrautlegi framherji mun verða samherji Ronaldinho hjá Mineiro og verður þetta tólfta liðið sem Anelka leikur fyrir á ferli sínum.
Anelka var látinn fara frá WBA eftir að hafa verið dæmdur í leikbann vegna umdeildrar handahreyfinga sinna er hann fagnaði marki undir lok síðasta árs.