Fotbolti.net
06.04.16 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Alexander Magnússon í Þrótt Vogum (Staðfest)

Suðurnesingurinn Alexander Magnússon í leik með Keflavík síðasta sumar.

Suðurnesingurinn Alexander Magnússon í leik með Keflavík síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Alexander Magnússon er genginn til liðs við Þrótt Vogum sem leikur í 3. deild karla.

Alexander er öflugur varnarmaður sem hefur leikið 106 leiki fyrir aðallið Njarðvíkur, Grindavíkur og Keflavíkur frá því að hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík í 1. deild karla árið 2007.
Alexander er 27 ára gamall en hefur lítið fengið að spila fyrir Keflavík og Grindavík undanfarin ár vegna meiðsla.

Alexander hefur reynslu úr Pepsi-deildinni og 1. deildinni en hann hefur aldrei leikið með liði sem er fyrir neðan 2. deild.

Þróttur Vogum rúllaði upp 4. deildinni síðasta sumar og það verður spennandi að fylgjast með félaginu spila í 3. deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.