06.04.17 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Hodgson ráðinn til starfa í Ástralíu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Roy Hodgson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, hefur verið ráðinn til starfa sem ráðgjafi hjá Melbourne City í Ástralíu.
Hinn 69 ára gamli Hodgson sagði af sér sem landsliðsþjálfari Englands eftir 2-1 tapið gegn Íslandi á EM í fyrra.
Hodgson er nú mættur í sitt fyrsta starf í fótboltanum síðan þá.

Melbourne er systurfélag Manchester City en Hodgson er góður vinur Brian Marwood, framkvæmdastjóra City.
Michael Valkanis var tímabundið ráðinn þjálfari Melbourne á dögunum en ekki er talið að Hodgson komi til greina í þjálfarastöðuna hjá liðinu.