Benjamín Jóhannes í Kormák/Hvöt (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kormákur/Hvöt hefur leik í 3. deild karla eftir mánuð þegar Húnvetningar heimsækja Vængi Júpíters í Grafarvoginn. Félagið komst upp úr 4. deild í fyrra með því að sigra Hamar í úrslitaleik.
Nú hefur Kormákur/Hvöt bætt nokkrum leikmönnum við sig fyrir komandi átök og eru þeir ekki af verri endanum.
Hinn þaulreyndi Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson á ríflega 250 leiki að baki fyrir Tindastól en erfið meiðsli héldu honum frá keppni allt síðasta sumar. Benni hefur áður leikið fyrir Hvöt og var hans fyrsti meistaraflokksleikur fyrir félagið sumarið 2008.
Benni verður mikill liðsstyrkur fyrir félagið enda er hann einn af sterkustu núspilandi Húnvetningum í boltanum.
Þá er Anton Ingi Tryggvason, heimamaður fæddur 2001, kominn aftur heim eftir að hafa verið hjá Dalvík/Reyni. Anton hefur komið við sögu í tveimur leikjum í Lengjubikarnum í vor.
Að lokum er Ante Marcic kominn til félagsins. Hann er iðinn og kvikur miðjumaður. Hann spilaði með Reyni Sandgerði sumarið 2020 og skoraði þá 4 mörk í 19 leikjum í 3. deildinni. Í fyrra var hann hjá NK Kamen í króatísku C-deildinni.
