06.04.22 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Koeman tekur við af van Gaal eftir HM (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hollenska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt að Ronald Koeman muni taka við hollenska karlalandsliðinu eftir HM sem fram fer í Katar í lok þessa árs.
Koeman tekur við af Louis van Gaal eftir HM í Katar en van Gaal greindi frá því á dögunum að hann væri að glíma við krabbamein.

Koeman gerir samning við hollenska sambandið til ársins 2026.
Hann þekkir landsliðið vel þar sem hann var landsliðsþjálfari frá 2018 til 2020 en þá þurfiti hann að hætta því Barcelona kom kallandi og óskaði eftir hans kröftum.
Koeman var svo látinn fara frá Barcelona á leiktíðinni og Xavi tók við stjórastöðunni þar.
Koeman hefur stýrt liðum á borð við Ajax, Benfica, Valencia, Southampton og Everton á stjóraferlinum.

Proud to share I will be the manager of Netherlands’ national team again after the WC. I am very much looking forward, let’s reach new successes together! 🇳🇱 #holland
— Ronald Koeman (@RonaldKoeman) April 6, 2022