Fotbolti.net
06.05.14 - 23:59
Magnús Már Einarsson

Fylkismenn fá framherja frá Catania (Staðfest)

Sadmir Zekovic.

Sadmir Zekovic.

Canon

Mynd: Fylkismenn.is

Sænski sóknarmaðurinn Sadmir Zekovic hefur gengið til liðs við Fylki en hann skrifaði undir eins árs samning við Árbæjarliðið í kvöld.

Sadmir hefur æft með Fylki undanfarna daga en þetta kemur fram á Fylkismenn.is. Sadmir er fæddur árið 1994 í Svartfjallalandi en hann er uppalinn í Svíþjóð.
Sadmir ólst upp hjá Malmö en árið 2012 fékk Catania á Ítalíu leikmanninn í sínar raðir. Sadmir spilaði þó ekkert í Serie A með Catania en hann lék með varaliði félagsins í neðri deildunum á Ítalíu.

Fylkismenn hafa verið í leit að framherja í vetur eftir að Viðar Örn Kjartansson fór til Valerenga og félagið hefur nú loks fundið arftaka hans.

Sadmir gæti leikið sinn fyrsta leik með Fylki gegn FH í annarri umferð Pepsi-deildarinnar á fimmtudag ef leikheimild berst í tæka tíð.

Heimild: Fylkismenn.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.