Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. maí 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stefán Teitur tæpur fyrir toppslaginn
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stefán Teitur Þórðarson hefur verið öflugur með Silkeborg í toppbaráttu dönsku B-deildarinnar en gæti misst af stórleik dagsins gegn lærisveinum Ólafs Kristjánssonar í Esbjerg.

Það er gríðarlega mikið undir í dag þar sem Silkeborg og Esbjerg eru að berjast um laust sæti í efstu deild danska boltans. Sjö stig skilja liðin að, þar sem Silkeborg er í öðru sæti og Esbjerg þriðja.

Stefán Teitur fékk höfuðhögg gegn Fredericia á mánudaginn og þurfti að fara af velli. Það var ekki búist við að hann yrði í hóp gegn Esbjerg en í gær var hópurinn kynntur og Stefán Teitur í honum.

Patrik Sigurður Gunnarsson ver mark Silkeborg og þá má finna Andra Rúnar Bjarnason og Kjartan Henry Finnbogason í röðum Esbjerg.



Sjá einnig:
Stefán Teitur fékk höfuðhögg í gær - Líður betur í dag
Athugasemdir
banner