06.05.22 - 11:50
Elvar Geir Magnússon
Salah var á borði með umboðsmanni sínum og íþróttastjórum Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Stuðningsmenn Liverpool eru mjög spenntir eftir að mynd birtist frá verðlaunakvöldverði í London þar sem Mohamed Salah sat ásamt umboðsmanni sínum og íþróttastjórum Liverpool.
Samningamál Salah hefur mikið verið í umræðunni en núgildandi samningur hans rennur út 2023. Liverpool vill fá hann til að skrifa undir nýjan samning og Salah reynir að fá bestu mögulegu launin.
Salah mætti á verðlaunahátíð þar sem íþróttafréttamenn völdu hann leikmann ársins.
Vonir stuðningsmanna Liverpool um að Salah geri nýjan samning hafa aukist eftir að Jurgen Klopp framlengdi og svo eftir að myndin birtist í gær. Góður staður til að ræða um nýjan samning?

Mynd: Twitter