19.11.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Drónaflugmaðurinn segist ekki hafa brotið lög

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Drónaflugmaðurinn sem tók upp hluta af fyrstu æfingu Mauricio Pochettino hjá Manchester United segist ekki hafa gert neitt ólöglegt þegar hann flaug drónanum.

TENGT EFNI
Fyrsta æfingin með Pochettino rataði á YouTube
Dróninn tók upp tólf mínútur af æfingu Rauðu djöflana og var myndbrotið birt á YouTube. Sá sem stýrði drónanum segir að hluti æfingarinnar sem náðist á myndband hafi verið partur af æfingu sem fjölmiðlar fengu aðgang að.
„Fyrir fólk sem er að velta sér upp úr lögmæti upptökunnar þá gildir ekkert flugbann yfir Carrington æfingasvæðinu. Dróninn var allan tímann í sjónmáli og flaug hvorki yfir né nálægt neinum á æfingasvæðinu. Flugið var því fullkomlega löglegt samkvæmt drónalögum," segir fjarflugmaðurinn.
„Dróninn er rétt merktur og ég get framvísað þeim leyfum sem þarf. Hvað varðar að leka liðsuppstillingu eða leikkerfi þá er myndbandið tekið á fyrstu æfingu nýs þjálfara með mikið af fjölmiðlum á svæðinu. Þetta er án vafa ekki eina myndskeiðið frá þessari æfingu."

#mufc drone footage: my analysis. Hugely damaging for Pochettino and his new club, and #lfc are the unwitting beneficiaries. But it seems nothing illegal has happened. That’s a hugely worrying development for clubs across the UK, who may have no defence to this sort of invasion. https://t.co/IQ6Zapd58Y
— Rob Dorsett (@RobDorsettSky) November 19, 2026

Mynd: EPA