Fotbolti.net
06.05.26 - 22:17
Stefán Marteinn Ólafsson

Guðni: Ef ekki hefði verið fyrir markmann þeirra þá hefði sigurinn orðið stærri

Auglýsing
Guðni Eiríksson þjálfari FH

Guðni Eiríksson þjálfari FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kvennaboltinn

FH vann sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna í kvöld þegar þær lögðu nýliða Grindavík/Njarðvík af velli á Kaplakrikavelli í 3. umferð Bestu deild kvenna.

Lestu um leikinn: FH 2 - 1 Grindavík/Njarðvík

„Ég er bara gríðarlega ánægður með þrjú stig og ánægður með framlag FH liðsins" sagði Guðni Eiríksson þjálfari FH eftir sigurinn í kvöld.

„Mér fannst við gera þetta mjög vel. Við sköpuðum urmul af færum og ef ekki hefði verið fyrir markmann Grindavík/Njarðvík þá hefði sigurinn orðið stærri" 

FH komst oft í frábærar stöður og var Guðni svekktur að ná ekki að nýta þær betur. 

„Já auðvitað, sérstaklega ef þetta hefði talið. Við erum búnar að spila leiki sem að við höfum ekki nýtt færin okkar og svo fengið þetta í andlitið" 

„Við erum ekki búnar að fá á okkur mörg færi FH liðið í sumar eða frá því að tímabilið hófst en allir boltar hafa einhvern veginn lekið inn. Þetta hefur verið helvítis barningur en mér fannst sóknarleikur liðsins góður. Við sköpuðum okkur aftur fjölmargar góðar stöður og góð færi en hún átti stórleik í markinu þannig það verður ekki tekið af henni" 

„Ég er mjög ánægður með leikinn, ég er mjög ánægður með innkomur leikmanna, við sýnum breidd. Við sendum leikmenn inn og þær breyta leiknum. Það er það sem maður vill sjá" sagði Guðni Eiríksson.

Öflug í marki gestanna.

Öflug í marki gestanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik17+2536
2FH17+2334
3ÍBV17-227
4Stjarnan17+526
5Þróttur R.17-322
6Grindavík/Njarðvík17-522
7Þór/KA17-319
8Fram17-1619
9Víkingur R.17-1217
10Valur17-1217
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.