14.10.26 - 17:50
Brynjar Ingi Erluson
Þórsarar úr leik í Evrópukeppni unglingaliða

Mynd: Ármann Hinrik - Akureyri.net

Mynd: Ármann Hinrik - Akureyri.net
Zalgiris U19 2 - 0 Þór U19
1-0 Vakaris Berenta ('43 )
2-0 Daumantas Braškys ('79 )
Lestu um leikinn
Annar flokkur Þórs er úr leik í Evrópukeppni unglingaliða eftir 2-0 tap gegn Zalgiris frá Litháen í síðari leik liðanna í umspili keppninnar í Vilnius í dag. Þórsarar töpuðu einvíginu samanlagt 6-3.

TENGT EFNI
Evrópukeppni unglingaliða: Bjarki með tvennu - Þór spilar í Vilnius í dag
Þórsarar urðu Íslandsmeistarar á síðasta ári og tryggðu sér þar með sæti í keppninni en Zalgiris er ríkjandi meistari í Litháen.
Fyrri leik liðanna lauk með 4-3 sigri Zalgiris á VÍS-vellinum og því var allt opið fyrir síðari leikinn.
Það voru hins vegar heimamenn sem náðu mikilvægu marki undir lok fyrri hálfleiks þegar Yakaris Berenta kom boltanum í netið.
Þegar tólf mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma bætti hinn 17 ára gamli Daumantas Braskys við öðru marki og gerði endanlega út um einvígið.
Zalgiris vann því einvígið samanlagt 6-3 og eru Þórsarar úr leik í keppninni.
Byrjunarlið Þórs: Lucas Vieira Thomas (M), Kári Jónsson, Lárus Sólon Biering Ottósson, Jósef Orri Axelsson, Hákon Kári Jónsson, Óliver Sesar Bjarnason, Stefán Björn Svavarsson, Smári Signar Viðarsson, Kjartan Ingi Friðriksson, Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson, Peter Ingi Helgason.