14.10.26 - 17:45
Brynjar Ingi Erluson
Kompany: Ótrúlega heimskulegt af Olise

Vincent Kompany

Mynd: EPA

Vincent Kompany

Mynd: EPA
Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, var allt annað en sáttur við hegðun Michael Olise í 3-3 jafntefli liðsins gegn Noregsmeisturum Viking í gær.

TENGT EFNI
Kane vonsvikinn með Olise: Þetta er algjör synd
Olise fékk tvö gul spjöld á örfáum sekúndum undir lok leiksins og var rekinn af velli eftir afar heimskulega hegðun.
Hann fékk fyrst gult spjald fyrir að toga aftan í leikmann Viking og stöðva skyndisókn. Aðeins nokkrum sekúndum síðar kastaði hann boltanum í andlitið á Zlatko Tripic og fékk annað gult spjald.
Viking nýtti sér liðsmuninn og jafnaði metin undir lokin en Kompany var vægast sagt ósáttur við framkomu Olise.
„Þetta var ótrúlega heimskulegt af honum, en hann veit það sjálfur. Við getum ekki sætt okkur við að einn af okkar leikmönnum sé rekinn af velli með þessum hætti. Þetta var algjörlega óþarfi af hans hálfu,“ sagði Kompany.
Olise tekur nú út leikbann og missir því af næsta leik Bayern í Meistaradeildinni, sem verður gegn Englandsmeisturum Arsenal í næstu viku.