Fotbolti.net
14.10.26 - 18:22
Brynjar Ingi Erluson

Wilcox nýtur enn fulls trausts hjá Man Utd

Jason Wilcox (t.h) er öruggur í starfi sínu

Jason Wilcox (t.h) er öruggur í starfi sínu

Canon

Mynd: EPA

Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá Manchester United, er ekki í hættu á að missa starf sitt þrátt fyrir harða gagnrýni Lisandro Martínez. Frá þessu greinir Manchester Evening News.
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
TENGT EFNI

Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd

Martínez, varnarmaður United, lét Wilcox og aðra stjórnarmenn félagsins heyra það eftir 2-0 tapið gegn Atlético Madríd í Meistaradeildinni í gær. Hann sakaði þá um metnaðarleysi á félagaskiptamarkaðnum í sumar og sagði ekki hafa verið gert nóg til að styrkja leikmannahópinn.

Ummælin koma á versta tíma fyrir United sem hefur byrjað tímabilið illa. Þau gætu einnig haft afleiðingar fyrir Martínez sjálfan og jafnvel kostað hann sætið í liðinu.

Samkvæmt MEN er staða Wilcox hins vegar örugg þrátt fyrir gagnrýnina. Eigendur United hafa áfram fulla trú á honum og sjá hann fyrir sér í lykilhlutverki hjá félaginu.

United eyddi 155 milljónum punda í sumar, minna en nýliðarnir Ipswich City og Hull City. Áherslan var lögð á að styrkja miðjuna og komu þeir Carlos Baleba, Youri Tielemans og Andrey Santos allir til félagsins.

Martínez hefði hins vegar viljað sjá United styrkja fleiri stöður og telur að leikmannahópurinn standist ekki samanburð við hin stórliðin.

Argentínumaðurinn hefur fengið töluverða gagnrýni fyrir að láta þessi orð falla opinberlega. Ashley Young, Wayne Rooney og Jamie Carragher eru á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt hann og telja að hann hefði átt að ræða þessi mál innan félagsins.
Lisandro Martínez

Lisandro Martínez

Canon

Mynd: EPA

Wilcox nýtur enn fulls trausts hjá Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.