Fotbolti.net
06.05.26 - 22:18
Stefán Marteinn Ólafsson

Gylfi Tryggva: Skandall, bara algjör skandall að dæma vítaspyrnu

Auglýsing
Gylfi Tryggvason var svekktur eftir leik í kvöld.

Gylfi Tryggvason var svekktur eftir leik í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Nýliðar Grindavík/Njarðvík þurftu að sætta sig við naumt 2-1 tap á Kaplakrikavelli gegn FH í 3. umferð Bestu deild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 2 - 1 Grindavík/Njarðvík

„Mín sýn á leiknum er að þetta var erfiður leikur og það var erfitt að spila góðan fótbolta í dag" sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík svekktur eftir tap.

„Þetta var leikur sem að var að mínu mati að fara snúast meira um baráttu, hlaup og vinna fyrstu bolta og seinni bolta"

„Mér fannst FH liðið bara gera það betur en við í dag. Mér fannst FH bara á sama tíma ná að spila góðan fótbolta oft á tíðum þannig líklega er það ekki afsökun fyrir okkur að hafa ekki náð því" 

„Ég þarf bara að setjast niður yfir því afhverju það tókst ekki en mér fannst FH liðið sterkari aðilinn í dag þrátt fyrir að þær hefðu skorað sigurmarkið í dag eftir hræðileg dómara mistök sem höfðu áhrif á úrslit leiksins í dag og það er bara eins og það er" 

FH fékk vítaspyrnu eftir að hendi var dæmt á Natöshu Anasi sem var umdeilt því hún var í tæklingu og fékk boltann í stoðhendina.

„Sigurmarkið, við áttum líklega að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar okkar leikmaður er rifinn niður í teignum" 

„Eins og vanalega þá er ég með frábært sjónarhorn á það og eins og vanalega er fjórði dómarinn með nákvæmlega sama sjónarhorn á það. Við deildum líka sama frábæra sjónarhorninu á móti Val í lok leiks þegar við áttum að fá klárlega vítaspyrnu þegar leikmaður gerir sig breiðari og setur hendina út og við fáum ekki vítaspyrnu þar þrátt fyrir að það hafi sést mjög vel frá okkar frábæra sjónarhorni sami fjórði dómari í þeim báðum leikjum en það var ekki dæmt þá" 

„Þetta er skandall, bara algjör skandall að dæma vítaspyrnu þegar leikmaður er að rennitækla og er að nota hendina til þess að styðja sig við jörðina"  sagði Gylfi Tryggvason svekktur. 

Nánar er rætt við Gylfa Tryggvason í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik17+2536
2FH17+2334
3ÍBV17-227
4Stjarnan17+526
5Þróttur R.17-322
6Grindavík/Njarðvík17-522
7Þór/KA17-319
8Fram17-1619
9Víkingur R.17-1217
10Valur17-1217
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.