Fotbolti.net
06.05.26 - 22:13
Stefán Marteinn Ólafsson

Ída Marín: Þá er þetta stress farið

Auglýsing
Ída Marín Hermansdóttir leikmaður FH

Ída Marín Hermansdóttir leikmaður FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

FH vann sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna í kvöld þegar þær lögðu nýliða Grindavík/Njarðvík af velli á Kaplakrikavelli í 3. umferð Bestu deild kvenna.

Lestu um leikinn: FH 2 - 1 Grindavík/Njarðvík

„Við vorum bara geggjaðar í dag og þetta er svo sætt að fá þennan sigur" sagði Ída Marín Hermannsdóttir eftir sigurinn í kvöld. 

„Ég var þvílíkt stressuð fyrir þennan leik en við vorum bara frábærar í dag" 

FH sótti sinn fyrsta sigur í kvöld og var sigurinn kærkominn. 

„Það var bara geggjað. Þá er þetta stress farið að ná fyrsta sigrinum og við getum bara spilað okkar leik" 

Hvað var það sem skildi á milli í kvöld? 

„Við vorum bara aggressívari og við nýttum reyndar bara eitt færi og eitt víti en bjuggum okkur til góðar stöður og vorum bara betri í dag" 

Genevieve Jae Crenshaw var frábær í marki Grindavík/Njarðvík í kvöld.

„Markmaðurinn hjá þeim er alveg mjög góð. Ég skaut tvisvar og hún varði mjög vel og bara flott hjá henni" sagði Ída Marín Hermannsdóttir. 

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik17+2536
2FH17+2334
3ÍBV17-227
4Stjarnan17+526
5Þróttur R.17-322
6Grindavík/Njarðvík17-522
7Þór/KA17-319
8Fram17-1619
9Víkingur R.17-1217
10Valur17-1217
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.