Fotbolti.net
06.06.14 - 18:00
Alexander Freyr Tamimi

Jardim ráðinn þjálfari Monaco (Staðfest)

Jardim er tekinn við Monaco.

Jardim er tekinn við Monaco.

Canon

Mynd: Getty Images

Monaco hefur staðfest ráðninguna á Leonardo Jardim sem þjálfara liðsins, en Portúgalinn skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Jardim tekur við af Claudio Ranieri, sem yfirgaf Monaco etir síðasta tímabil, og mun hann hefja störf með sínum nýju leikmönnum í lok mánaðar.

,,Ég er mjög ánægður með að vera kominn til starfa hjá Monaco því þetta er frábært félag. Ég hugsaði mikið um þetta verkefni og tel að við munum standa okkur vel,\" sagði hinn 39 ára gamli Jardim við Monaco TV.

,,AS Monaco er með frábæra leikmenn og marga góða unga leikmenn. Ég mun gera allt sem ég get til að taka næsta skref með liðinu.\"

Jardim tekur við Monaco eftir gott tímabil með Sporting Lissabon, en hann stýrði liðinu til annars sætisins í heimalandinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.