06.06.14 - 19:02
Alexander Freyr Tamimi
Sami Hyypia tekinn við Brighton (Staðfest)

Hinn geðþekki Hyypia er tekinn við Brighton.

Mynd: Getty Images

Hinn geðþekki Hyypia er tekinn við Brighton.

Mynd: Getty Images
Liverpool-goðsögnin Sami Hyypia hefur snúið aftur til Englands, en í dag var hann ráðinn knattspyrnustjóri Brighton í Championship-deildinni.
Þessi fyrrum landsliðsmaður Finnlands skrifaði undir þriggja ára samning við Brighton, en hann hafði stýrt Bayer Leverkusen í Þýskalandi frá maí 2012 fram í apríl síðastliðinn.
,,Ég er í skýjunum með þetta starf. Brighton & Hove Albion er metnaðargjarnt félag og ég er mjög ánægður með að hafa fengið þetta tækifæri,\" sagði Hyypia við heimasíðu félagsins.
Hyypia spilaði 318 leiki fyrir Liverpool á árunum 1999-2009 og var gríðarlega vinsæll hjá félaginu.