Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 06. júní 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Kristján Guðmunds: Þessi spá gat ekki verið nákvæmari
Kristján Guðmundsson.
Kristján Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þessi spá gat bara ekki verið nákvæmari. Greinilegt að sérfræðingar Fótbolta.net eru með puttann á púlsinum," segir Kristján Gumundsson, þjálfari Stjörnunnar, en liðinu er spáð 6. sæti í Pepsi Max-deild kvenna í sumar.

„Markmiðið er að upplifa gleði við það að æfa og spila fótbolta, þá fylgir annað með," sagði Kristján aðspurður út í markmið sumarsins.

Kristján er sáttur með styrkinguna á leikmannahópnum í sumar.„Við erum geysilega ánægð með liðsstyrkinn sem að við höfum fengið."

„Við munum ekki bæta við okkur leikmönnum fyrir mót þó að einhver félagaskipti eigi eftir að detta inn. Það eru leikmenn sem hafa æft með okkur undanfarið."


Vika er í að Stjarnan hefji leik í Pepsi Max-deildinni en liðið heimsækir þá Þór/KA.

„Það verður athyglisvert að fylgjast með deildinni í ár í ljósi aðstæðna. Reyndar bjóst ég við að þurfa spila þéttar en raun ber vitni en uppröðun mótsins býður upp á að fólk geti fylgst grannt með. Lítið eða ekkert um löng leikjastop sem þýðir að auðveldara er að fá áhuga og fylgjast með vonandi ört vaxandi deild," sagði Kristján að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner