03.10.26 - 19:54
Magnús Atlason
Ísak Bergmann: Við vissum nákvæmlega staðsetninguna á hvor öðrum
Auglýsing

Ísak Bergmann Jóhannesson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísak Bergmann Jóhannesson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland vann sannfærandi 3-0 sigur á Búlgaríu í Þjóðadeildinni. Fótbolti.net náði tali af Ísaki Bergmanni Jóhannessyni eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Búlgaría
"Okkur líður bara mjög vel, gaman að vinna hérna á Laugardalsvelli fyrir framan okkar fólk og vinna 3-0 og halda hreinu, okkur líður bara mjög vel."
Hvað gerði Ísland öðruvísi í dag í seinni hálfleik en á móti Eistlandi eftir svipaða fyrri hálfleika?
"Við drápum leikinn. Við skoruðum annað markið og svo skoruðum við náttúrulega þriðja markið líka. Svo vorum við bara solid varnarlega. Svo erum við með þennan mann Orra sem klárar leikinn fyrir okkur."
Í fyrsta marki Íslands lét Ísak sendingu Hákons fara á milli fóta sér til Orra Steins sem kláraði færið. "Vissirðu af Orra fyrir aftan þig?"
"Já. Ég heyrði í honum og svo líka erum við Hákon og Orri með connection. Við höfum þekkst frá því við vorum litlir pjakkar svo við vissum nákvæmlega staðsetninguna á hvor öðrum og þetta var gríðarlega flott mark."
Það er toppslagur í riðlinum framundan á móti Eistlandi. "Þið ætlið að hefna ykkur á þeim?"
"Já algjörlega. Það var klárlega erfiðasti leikurinn þannig að þetta verður örugglega aftur erfiður leikur úti, sérstaklega á þeirra heimavelli og við erum að fara út þannig að ég held að þetta verði hörkuleikur."
ITALIC