Fotbolti.net
04.10.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þjóðadeildin í dag - Heimir og félagar mæta Ísrael í Serbíu

Þjóðadeildin í dag - Heimir og félagar mæta Ísrael í Serbíu
Canon

Mynd: EPA

Það er vægast sagt athyglisverður leikur í kvöld þar sem Írland og mætast. Mikið hefur verið rætt og ritað um viðureign liðanna en leikmenn héldu kosningu um hvort þeir vildu spila fyrri leikinn og flestir sögðu já.

Fyrri leikur liðanna fór fram í Ungverjalandi en leikurinn í kvöld fer fram í Serbíu. Írsk yfirvöld treysta sér ekki til að hýsa leikinn á írskri grundu.

Írland er í 3. sæti með fjögur stig, eins og Kósovó sem er í 2. sæti. Kósovó fær topplið Austurríkis í heimsókn.

Portúgal getur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni með sigri á Noregi. Danmörk heimsækir Wales í sama riðli. Portúgal er með níu stig en öll hin þrjú eru með þrjú stig.

Þýskaland heimsækir Grikkland. Grikkland vann fyrri leikinn en Þýskaland vann fyrsta leikinn undir stjórn Jurgen Klopp gegn Serbíu í síðustu umferð. Serbía heimsækir Holland. Grikkland er með sjö stig, Holland fimm, Þýskaland fjögur og Serbía án stiga.
sunnudagur 4. október

Þjóðadeildin A
18:45 Grikkland - Þýskaland
18:45 Holland - Serbía
18:45 Portúgal - Noregur
18:45 Wales - Danmörk

Þjóðadeildin B
16:00 Kósóvó - Austurríki
18:45 Írland - Ísrael

Þjóðadeildin D
13:00 Aserbaídsjan - Litáen
16:00 Malta - Andorra
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.