Fotbolti.net
04.10.26 - 10:47
Brynjar Ingi Erluson

Portúgalar skiptast í fylkingar vegna Ronaldo

Portúgalar skiptast í fylkingar vegna Ronaldo
Canon

Mynd: EPA

Margir Portúgalar vilja að Jorge Jesus landsliðsþjálfari hætti að velja Cristiano Ronaldo í landsliðið samkvæmt skoðanakönnun CNN.

Ronaldo yfirgaf landsliðshópinn eftir að Jesus á að hafa brotið samkomulag þeirra um hvaða leiki hann myndi spila í Þjóðadeildinni. Framherjinn sat á bekknum gegn Noregi og var látinn hita upp en fékk ekki mínútu. Það fór illa í hann og skömmu eftir leikinn yfirgaf hann hópinn.

Mikið hefur gengið á síðan. Nokkrir leikmenn hafa látið að því liggja að hópurinn sé samrýndari án Ronaldo á meðan aðrir hafa mótmælt framkomu Jesus í hans garð. Þeir munu líklega setjast niður að landsleikjaverkefninu loknu og ræða framhaldið en miklar líkur eru taldar á að Ronaldo hafi þegar leikið sinn síðasta landsleik.

CNN kannaði hug Portúgala til málsins og niðurstöðurnar sýna að þjóðin er klofin. Alls vilja 37 prósent að hætt verði að velja Ronaldo í landsliðið en 35 prósent vilja halda honum. Þá telja 25 prósent að þjálfarinn eigi að velja þá leikmenn sem standa sig best með félagsliðum sínum og henta verkefninu hverju sinni.

Ronaldo nýtur mests stuðnings meðal stuðningsmanna Sporting, síns gamla félags, en um 45 prósent þeirra vilja halda honum í landsliðinu. Á hinn bóginn vilja 38 prósent stuðningsmanna Benfica og 47 prósent stuðningsmanna Porto ekki sjá hann aftur í hópnum.

Stuðningur við áframhaldandi landsliðsferil Ronaldo þýðir þó ekki að fólk vilji sjá hann byrja alla leiki. Aðeins um 10 prósent vilja að hann verði áfram fastamaður í byrjunarliðinu en 51 prósent telja að þjálfarinn eigi að ráða því hvaða leiki hann byrjar.

Eldri kynslóðin er frekar á því að landsliðsferli Ronaldo sé lokið en um 60 prósent yngri kynslóðarinnar telja að hann eigi enn að hafa hlutverk í liðinu. Það eigi þó að ráðast af leiknum hverju sinni og mati þjálfarans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.