Fotbolti.net
04.10.26 - 11:15
Brynjar Ingi Erluson

Símtal Alli og Kane vekur athygli

Dele Alli og Harry Kane

Dele Alli og Harry Kane

Canon

Mynd: EPA

Dele Alli, fyrrverandi leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, vakti mikla athygli þegar hann hringdi í gamla liðsfélaga sinn Harry Kane í beinu streymi á Twitch um helgina.
Alli æfir með utandeildarliði
TENGT EFNI

Alli æfir með utandeildarliði

Alli er án félags eftir að hafa farið frá Como í fyrrasumar. Hann hefur reynt að finna sér nýtt félag en það er ekki beint slegist um leikmanninn sem var eitt sinn ein helsta vonarstjarna enska boltans.

Hann spilaði frábærlega á HM 2018 og var þá í aðalhlutverki hjá Tottenham ásamt Kane en síðan hefur leiðin legið niður á við. Meiðsli og vandræði utan vallar hafa gert honum erfitt fyrir.

Alli streymir nú reglulega á Twitch og ákvað að hringja í Kane í landsleikjahléinu. Framherjinn virtist hafa áhyggjur af gamla liðsfélaga sínum og vildi vita hvernig hann hefði það og hvað hann væri að gera.

„Það er langt síðan síðast. Hvernig hefurðu það?“ spurði Kane og Alli sagðist hafa það gott. Kane vissi fyrirfram að hann væri í beinu streymi en símtalið var stutt.

Alli sagði að aðeins einn maður ætti að vinna Ballon d'Or í ár og það væri Kane.

„Ég kann virkilega að meta það. Hvað segirðu annars? Hvað ertu að gera núna og hvar ertu?“ spurði Kane.

Alli sagðist búa í Lundúnum og ætla að segja honum betur frá stöðunni þegar streymið væri búið. Kane sagðist vona að hann væri að leggja hart að sér og Alli sagðist gera það og hafa gaman.

Þeir kvöddu skömmu síðar en Kane sagðist spenntur að heyra betur í honum eftir streymið.

Alli hringdi líka í Jack Grealish, Sergio Reguilon og Eric Dier, auk fleiri, og sum símtölin voru vandræðalegri en önnur. Hægt er að hlusta á samtalið við Kane hér fyrir neðan.

Símtal Alli og Kane vekur athygli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.