04.10.26
UTAN VALLAR: Evróputekjur íslenskra liða árið 2026
SÆVAR ÞÓR SVEINSSON
Öll þau íslensku félagslið sem tóku þátt í forkeppnum félagsliðakeppna UEFA þetta árið hafa nú lokið keppni eftir að kvennalið Breiðabliks og FH duttu út í annarri umferð forkeppni Evrópubikarsins á miðvikudaginn var. Íslensku félagsliðin náðu misgóðum árangri og Evróputekjurnar því sömuleiðis mismiklar. Í greininni verður farið yfir það hvað hvert og eitt lið fær í sinn vasa fyrir þátttöku sína í ár. Félögin fá að sjálfsögðu greitt til sín í evrum frá UEFA og því geta nákvæmar krónutölur verið á einhverju reiki. Til einföldunar verður miðað við meðalgengi evrunnar í ágústmánuði samkvæmt Seðlabanka Íslands.

