Einkunnir Íslands - Orrahríð í Laugardal

Skoraði tvö og lagði upp eitt.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fær átta í einkunn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland er með sjö stig á toppi riðilsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísak var góður á miðju Íslands í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hefur komið vel inn í fjarveru Elíasar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði tvö og lagði upp eitt.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Með sigrinum styrkir Ísland stöðu sína á toppi riðilsins og er liðið nú með sjö stig, tveimur stigum meira en Eistland sem er í öðru sæti.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnargjöf Fótbolta.net úr leiknum.
Hefur komið frábærlega inn í mark Íslands eftir meiðsli Elíasar og var engin breyting þar á í dag. Steig varla feilspor.
Mikael Egill Ellertsson - 7
Átti í harðri baráttu við hægri kantmann Búlgara og fékk að líta gula spjaldið snemma leiks. Reyndi lítið á hann varnarlega en kláraði frábærlega í marki sínu sem gulltryggði sigurinn.
Hörður Björgvin Magnússon - 6
Fékk gult spjald eftir aðeins fjórar mínútur en það kom ekki að sök . Komst vel frá þessu.
Aron Einar Gunnarsson - 6
Missti af boltanum í öftustu línu eftir rúmar tuttugu sekúndur en vann sig vel inn í leikinn. Lítið hægt að setja út á frammistöðu Arons.
Mikael Neville Anderson - 8
Reyndi lítið á hann varnarlega en átti góða stoðsendingu í öðru marki Íslands. Færðist upp á hægri kant um miðbik seinni hálfleiks og stóð sig vel.
Andri Fannar Baldursson - 6
Komst þokkalega frá þessu í dag þrátt fyrir að vera ekki sem mest í boltanum. Átti gott skot í fyrri hálfleik sem hefði mátt syngja í netinu.
Ísak Bergmann Jóhannesson - 8
Með glæsilega hreyfingu í fyrsta marki Íslands þar sem hann lætur boltann fara. Mikið í boltanum og traustur á miðjunni.
Arnór Sigurðsson - 5
Lítið í boltanum og komst nánast aldrei í takt við leikinn, sóknir Íslands meira og minna á vinstri kanti í fyrri hálfleik. Þegar hann komst í álitlegar stöður hefði hann mátt nýta þær betur.
Jón Dagur Þorsteinsson - 7
Var mikið í boltanum á vinstri vængnum og skapaði mikinn usla. Orri hefði mátt stýra boltanum í netið eftir góða fyrirgjöf Jóns. Stafar mun meiri hætta af honum á vinstri vængnum frekar en þeim hægri.
Hákon Arnar Haraldsson - 7
Hrein unun að sjá Hákon þegar hann tekur á rás og hann gerði það frábærlega í öðru marki Íslands. Átti þó slæm mistök í fyrri hálfleik þar sem nafni hans kom til bjargar.
Orri Steinn Óskarsson - 9, maður leiksins
Skoraði tvö frábær mörk og þau hefðu svo sannarlega getað verið þrjú. Þræddi nálarauga er hann lagði upp mark Mikaels Egils. Svekkjandi að brenna af vítaspyrnu fyrir þrennunni en fyrirliðinn getur þó gengið heldur betur stoltur frá borði. Má hafa í huga að hann er enn gjaldgengur í U21-liðið!
Varamenn:
Andri Lucas Guðjohnsen - 6
Daníel Leó Grétarsson - 6
Gylfi Þór Sigurðsson - 6
Guðlaugur Victor Pálsson - 6
Logi Tómasson - 6

Fær átta í einkunn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland er með sjö stig á toppi riðilsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísak var góður á miðju Íslands í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hefur komið vel inn í fjarveru Elíasar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
