Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 06. júní 2021 06:00
Victor Pálsson
„Klárlega ekki séð hæfileikaríkari 17 ára strák"
Mynd: EPA
Kalvin Phillips, landsliðsmaður Englands, hefur aldrei séð hæfileikaríkari 17 ára strák en Jude Bellingham.

Bellingham er ein af vonarstjörnum Englands og mun spila með liðinu á EM í sumar þrátt fyrir ungan aldur.

Phillips er gríðarlrega hrifinn af leikmanninum sem spilar með Borussia Dortmund í Þýskalandi.

„Ég hef klárlega ekki séð jafn hæfileikaríkan 17 ára strák og hann," sagði Phillips við TalkSport.

„Ég held að ég sé ekki einu sinni eins hæfileikaríkur. Hann er frábær leikmaður og frábær drengur. Hann á framtíðina fyrir sér."

„Það er ekki hægt að lýsa því hversu hæfileikaríkur hann er. Það er mikill heiður fyrir svo ungan strák að komast til Borussia Dortmund."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner