Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. júní 2022 10:40
Ívan Guðjón Baldursson
Hafnar þremur tilboðum og samþykkir launalækkun hjá Liverpool
Mynd: EPA

Hinn 36 ára gamli James Milner virðist enn eiga nóg eftir í bensíntankinum og er að skrifa undir nýjan eins árs samning við stórveldi Liverpool.


Milner, sem rennur út á samningi í lok mánaðar, er búinn að hafna samningstilboðum frá þremur félögum til að vera áfram innan herbúða Liverpool.

Auk þess að hafna öðrum félögum þarf Milner að taka á sig launalækkun til að halda áfram á Anfield.

Milner á 289 leiki að baki fyrir Liverpool og spilaði í 39 leikjum á síðustu leiktíð þrátt fyrir hækkandi aldur.


Athugasemdir
banner
banner
banner