06.07.13 - 20:15
Ívan Guðjón Baldursson
Hugo Campagnaro til Inter (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hugo Campagnaro er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Inter eftir að samningur leikmannsins við Napoli rann út í sumar.
Campagnaro hefur verið lykilmaður í liði Napoli síðustu ár en þessi 33. ára gamli argentínski varnarmaður var til dæmis valinn 33. besti leikmaður Evrópu af Bloomberg á síðasta tímabili.

Walter Mazzarri er nýr þjálfari Inter en hann þjálfaði Campagnaro í fjögur ár þegar hann var við stjórnvölinn hjá Napoli.
Marco Andreolli er þá einnig kominn frítt til félagsins en hann kemur frá Chievo og á meira en 75 efstudeildarleiki að baki.
,,FC Internazionale tilkynnir komu Marco Andreolli og Hugo Campagnaro til félagsins af mikilli ánægju,\" stendur á vefsíðu Inter.
,,Varnarmennirnir hafa skrifað undir samninga við Inter til 2017 (Andreolli) og 2015.\"
Inter endaði í níunda sæti deildarinnar á síðasta tímabili en Napoli endaði í öðru sæti, 24 stigum yfir Inter.

Heimild: Yahoo