06.07.14 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð
Fram kallar Hafþór Mar aftur úr láni (Staðfest)

Hafþór Mar fagnar marki með Völsungi í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar hafa kallað framherjann Hafþór Mar Aðalgeirsson til baka úr láni frá Selfossi. Hann er því með leikheimild með Fram gegn Keflavík í Borgunarbikarnum í kvöld.
Hafþór Mar kom til Fram frá Völsungi síðastliðið haust. Hann var svo lánaður til Selfoss í byrjun maí.
Hjá Selfossi spilaði hann 11 leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Hafþór Mar sem er 19 ára gamall gerði sjö mörk í fimmtán deildarleikjum fyrir Völsung í fyrstu deildinni í fyrrasumar, en hann hefur verið lykilmaður liðsins undanfarin ár.
Þá hefur Hafþór einnig leikið með U17 og U19 ára landsliði Íslands á ferlinum.
Fram mætir Keflavík í 8 liða úrslitum Borgunarbikars karla klukkan 19:15 á Laugardalsvelli í kvöld. Hafþór Mar er kominn með leikheimild og má spila leikinn.