Fotbolti.net
06.07.14 - 18:37
Ívan Guðjón Baldursson

Stuivenberg nýr aðstoðarþjálfari Man Utd (Staðfest)

Stuivenberg, sem er þekktur fyrir að ná vel til ungra leikmanna, er nýr aðstoðarþjálfari hjá Manchester United.

Stuivenberg, sem er þekktur fyrir að ná vel til ungra leikmanna, er nýr aðstoðarþjálfari hjá Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

Louis van Gaal hefur fengið Albert Stuivenberg til liðs við sig hjá Manchester United og verður hinn hollenski Stuivenberg aðstoðarþjálfari Rauðu djöflanna.

Stuivenberg var þjálfari hollenska U-21 landsliðsins og setur ráðning hans mögulegar framtíðarstöður Phil Neville, Paul Scholes og Nicky Butt í hættu.
Stuivenberg vann EM 2011 og 2012 með U-17 ára landsliði Hollendinga og er hann mikið fyrir að vinna með ungum leikmönnum.

,,Manchester United er búið að ráða Albert Stuivenberg sem aðstoðarþjálfara,\" stendur í yfirlýsingu frá félaginu.

,,Albert hefur störf sín strax þar sem hann vinnur samhliða aðstoðarknattspyrnustjóranum Ryan Giggs.\"

Van Gaal er þegar búinn að skipta um tvo þjálfara Man Utd og virðist óhræddur við að breyta til í herbúðum félagsins.

Heimild: Guardian

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.