06.07.16 - 18:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ever Banega kominn til Inter (Staðfest)

Ever Banega í leik með Sevilla.

Mynd: Getty Images

Ever Banega í leik með Sevilla.

Mynd: Getty Images
Ever Banega er kominn til Inter en hann skrifar undir þriggja ára samning við liðið.
Ítalska liðið borgar ekki fyrir Banega þar sem samningurinn hans við Sevilla var runninn út.
Hann vann Evrópudeildina tvisvar með Sevilla en félagsskiptin til Inter komu fáum á óvart þar sem mikið var búið að ræða og rita þau.
Banega spilaði 59 leiki með Sevilla og skoraði í þeim átta mörk.
Hann vann Evrópudeildina tvisvar með Sevilla en félagsskiptin til Inter komu fáum á óvart þar sem mikið var búið að ræða og rita þau.
Banega spilaði 59 leiki með Sevilla og skoraði í þeim átta mörk.
