06.07.16 - 11:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mike van der Hoorn til Swansea (Staðfest)

Mike van der Hoorn er kominn til Swansea.

Mynd: Swansea

Swansea City er búið að kaupa Mike van der Hoorn, varnarmann Ajax en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Der Hoorn skrifar undir þriggja ára samning við Swansea en hann er 23 ára Hollendingur.
Hann mun berjast við Ashley Williams, Federico Fernandez og Jordi Amat um miðvarðarstöðurnar hjá Swansea.
Varnarmaðurinn byrjaði ferilinn hjá Utrecht og var valinn leikmaður ársins hjá félaginu árið 2013, þá aðeins tvítigur. Hann var kominn til Ajax stuttu seinna og varð hann hollenskur meistari með liðinu á fyrsta tímabili.
Hann spilaði alls 43 leiki og skoraði þrjú mörk hjá Ajax en hann hefur verið í yngri landsliðum Hollands.