Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 06. júlí 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KFG fær Erni Frey á láni frá Leikni (Staðfest)
Ernir í leik með Leikni.
Ernir í leik með Leikni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir úr Breiðholti hefur lánað varnarmanninn Erni Frey Guðnason í KFG sem leikur í 2. deild karla.

Ernir Freyr er 21 árs, en hann hefur komið við sögu í þremur leikjum með Leikni í Inkasso-deildinni í sumar og þá hefur hann einnig leikið einn leik í Mjólkurbikarnum.

Hann hefur byrjað alla þrjá leikina sem hann hefur spilað í Inkasso-deildinni á þessari leiktíð, en Leiknir er þar í sjötta sæti.

Alls hefur hann spilað 13 leiki með Leikni í deild og bikar, en hann á einnig að baki leiki með KB í 4. deildinni.

KFG er í tíunda sæti 2. deildar, en liðið á leik í dag gegn Fjarðabyggð á útivelli. Ernir er gjaldgengur í þann leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner