Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 06. júlí 2022 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Inter fær hægri bakvörð frá Cagliari (Staðfest)
Raoul Bellanova gengur í raðir Inter
Raoul Bellanova gengur í raðir Inter
Mynd: Inter
Raoul Bellanova er genginn til liðs við Inter á láni frá Cagliari út tímabilið.

Bellanova, sem er 22 ára gamall hægri bakvörður, er uppalinn hjá Milan, en hann samdi við franska félagið Bordeaux fyrir þremur árum.

Hann var lánaður til Atalanta í janúar árið 2020 og festi ítalska félagið kaup á honum svo um sumarið.

Síðustu tvö tímabil hefur hann verið á láni hjá Pescara og nú síðast Cagliari en síðarnefnda liðið keypti hann frá Atalanta í maí.

Félagið hefur nú lánað hann til Inter út næstu leiktíð og mun Inter svo kaupa hann næsta sumar.

Bellanova á 81 landsleik að baki fyrir yngri landslið Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner