Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. júlí 2022 07:10
Brynjar Ingi Erluson
Weghorst mættur til Besiktas (Staðfest)
Wout Weghorst er kominn til Besiktas
Wout Weghorst er kominn til Besiktas
Mynd: Besiktas
Hollenski framherjinn Wout Weghorst gerði í gær eins árs lánssamning við tyrkneska félagið Besiktas en hann kemur frá Burnley.

Þessi 29 ára gamli leikmaður kom til Burnley frá Wolfsburg í janúar á þessu ári en hann kom í stað Chris Wood sem fór til Newcastle United.

Hann skoraði einungis tvö mörk í tuttugu leikjum er Burnley féll niður í B-deildina.

Burnley hefur misst marga lykilmenn síðan og bætist Weghorst við þann lista en hann gerði í gær eins árs lánssamning við Besiktas.

Besiktas, sem hafnaði í 6. sæti tyrknesku deildarinnar á síðustu leiktíð, mun greiða laun Weghorst.
Athugasemdir
banner
banner
banner