Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 06. júlí 2022 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
West Ham að kaupa Downes fyrir 12 milljónir
Mynd: Getty Images

West Ham United er að ganga frá kaupum á miðjumanninum Flynn Downes fyrir 12 milljónir punda samkvæmt Sky Sports.


Downes er 23 ára gamall og var lykilmaður í liði Swansea í Championship deildinni á síðustu leiktíð.

Hann á ellefu leiki að baki fyrir U19 og U20 landslið Englands og var hjá Ipswich Town í fjögur ár áður en hann flutti til Wales.

Hjá Swansea spilaði Downes aftarlega á miðjunni er liðið endaði í 15. sæti með 61 stig.

Það verður áhugavert að sjá hvort Downes takist að stökkva upp í ensku úrvalsdeildina og standa sig gegn þeim allra bestu.


Athugasemdir
banner
banner
banner