06.08.14 - 19:22
Ívan Guðjón Baldursson
Isla er kominn til QPR (Staðfest)

Mauricio Isla hér í baráttunni við Xabi Alonso er Síle sendi Spán heim frá Brasilíu.

Mynd: Getty Images

Síleski landsliðsmaðurinn Mauricio Isla hefur verið lánaður til QPR eftir að hann hlaut atvinnuleyfi á Englandi.
Isla er samningsbundinn Juventus og fór í læknisskoðun hjá QPR fyrr í vikunni en óljóst var hvort hann hlyti atvinnuleyfi.

,,Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað, þetta er byrjun á nýju ævintýri fyrir mig,\" sagði hinn 26 ára gamli Isla.
,,Ég er mjög spenntur fyrir þessu tímabili með QPR og er viss um að komandi tímabil verður frábært bæði fyrir mig og félagið.\"
Isla gerði gott mót með Síle á HM í sumar þar sem hann og liðsfélagar hans slógu Spánverja úr leik með 2-0 sigri í riðlakeppninni.
Isla getur leyst nokkrar stöður af hólmi og verður líklega notaður í stöðu hægri bakvarðar eða kantmanns hjá QPR.

Heimild: Football-Italia