Fotbolti.net
06.08.14 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Mustafi til Valencia (Staðfest)

Mustafi í 16-liða úrslitum gegn Alsír á HM.

Mustafi í 16-liða úrslitum gegn Alsír á HM.

Canon

Mynd: Getty Images

Sampdoria er búið að selja þýska heimsmeistarann Shkodran Mustafi til Valencia þar sem hann er búinn að skrifa undir fimm ára samning.

Kaupverðið er ekki staðfest en er talið nema um 10 milljónum evra og mun líklega hækka eftir frammistöðum og ef leikmaðurinn verður áframseldur á næstu árum.
Mustafi hefur átt frábært sumar sem byrjaði á því að hann var óvænt valinn í leikmannahóp Þjóðverja sem vann HM í Brasilíu og nú lýkur sumri leikmannsins með komu til Valencia.

Mustafi lýkur læknisskoðun á fimmtudaginn og verður kynntur sem leikmaður spænska félagsins eftir það.

Heimild: Football-Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.