06.08.14 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ricky van Wolfswinkel á láni til St Etienne (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Norwich City hefur lánað hollenska framherjann Ricky van Wolfswinkel til St. Etienne í frönsku úrvalsdeildinni út tímabilið.
Hollenski framherjinn kom til Norwich fyrir 10,7 milljónir punda á síðustu leiktíð en gekk illa að finna sig og skoraði einungis eitt mark í 25 leikjum.
Félagið féll niður um deild og hefur Norwich nú ákveðið að láta hann fara frá félaginu, alla vega út tímabilið.
Hann er nú kominn á láni til St. Etienne þar sem hann leikur á komandi leiktíð en félagið er meðal stærstu félaga í Frakklandi.