Fotbolti.net
06.08.14 - 16:07
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Taider til Southampton í skiptum fyrir Osvaldo (Staðfest)

Taider til Southampton í skiptum fyrir Osvaldo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Saphir Taider (á mynd) er formlega orðinn leikmaður Southampton en hann kemur frá Inter í skiptum fyrir Daniel Osvaldo.

Um lánssamninga er að ræða en klásúlur eru varðandi báða leikmenn sem gerir félögunum kleypt að kaupa þá næsta sumar.
Taider er 22 ára landsliðsmiðjumaður Alsír og mun hann fá treyju númer 17 hjá Southampton.

Osvaldo fann sig engan veginn á Englandi en hann þekkir vel til ítalska boltans eftir að hafa leikið þar í mörg ár, síðast fyrir Roma 2011-2013.

Ezequiel Schelotto og Hugo Campagnaro, leikmenn Inter, gætu líka farið til Southampton en það kemur í ljós á næstu dögum.

Það hefur verið mikið í gangi á skrifstofu Southampton í sumar en félagið hefur selt frá sér marga sterka leikmenn.

Ralph Krueger, stjórnarformaður Southampton, segir að sumarsölum félagsins sé lokið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.