Kórdrengir voru mættir aftur í baráttuna í Lengjudeildinni í kvöld eftir smá hlé vegna sóttkvíar. Þeir sendu skýr skilaboð með 3-0 útisigri gegn Þrótti og halda sér í virkri baráttu um annað sæti deildarinnar.
Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, er skiljanlega ánægður með sitt lið.
Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, er skiljanlega ánægður með sitt lið.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 3 Kórdrengir
„Þetta var hrikalega gott. Sérstaklega fyrri hálfleikurinn og síðustu 10-15 mínúturnar. Þróttur er miklu betra lið en taflan segir," sagði Davíð. „Það var gríðarlegur kraftur í þeim í seinni hálfleik og við þurftum að fóta okkur aftur og spyrna frá okkur."
„Það var gott að fá svona svar frá liðinu. Maður er sáttur með þessi þrjú stig en svo er það bara næsti leikur. Það er alvöru törn framundan og við erum undirbúnir fyrir það. Ég set samt smá spurningamerki við að við séum að spila leiki með svona skömmu millibili. Mér finnst að það eigi að vera hægt að koma þessu betur fyrir."
Tveir í byrjunarliðinu léku sinn fyrsta leik fyrir Kórdrengi; norski markvörðurinn Alexander Pedersen og svo Alex Freyr Hilmarsson sem kom á láni frá KR.
„Þeir voru frábærir. Það vita það allir að Alex er frábær. Hann tók 80 mínútur í dag. Það verður að byggja ofan á það. Okkur hefur kannski vantað svona leikmann inn á miðsvæðið hjá okkur. Leikmann sem er rólegur á boltann og hefur mikla yfirsýn. Hann er tempóstjórnandi í liðinu og gott að fá hann inn."
Í viðtalinu ræðir Davíð einnig um meiðslalistann og næsta leik liðsins, sem er gegn Aftureldingu á þriðjudaginn.
Athugasemdir























