Vozinha og aðrir markverðir sem urðu költhetjur á HM

Költhetjan verður ef til vill eftir í Bandaríkjunum.

Mynd: EPA

Allt er fertugum fært.

Mynd: EPA

Væri Martínez enn í markinu hjá Villa ef ekki væri fyrir vörsluna í úrslitaleik HM 2018?

Mynd: EPA

Yann Sommer er glæsilegt eintak af manni.

Josimar José Évora Dias, betur þekktur sem Vozinha, vakti mikla athygli á HM sem nú fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Þrátt fyrir að vera orðinn fertugur stóð Vozinha sig með prýði er Grænhöfðaeyjar töpuðu naumlega fyrir ríkjandi heimsmeisturum í Argentínu í framlengdum leik í 32-liða úrslitum keppninnar.
Það verður seint sagt að frægðarsól Vozinha hafi risið hátt áður en Grænhöfðaeyjar hófu leik á HM. Hann er vissulega að nálgast hundrað A-landsleiki en fæstir þeirra hafa verið gegn andstæðingum á borð við þá sem liðið mætti á síðustu vikum. Þá er ekki beint hægt að segja að ferill hans með félagsliðum hafi vakið mikla athygli nema þá ef fólk sé djúp í boltanum á Kýpur, Moldóvu eða Slóvakíu.
Vozinha spilaði síðast með Chaves í B-deildinni í Portúgal en hefur einnig spilað í áðurnefndum löndum. Samkvæmt Transfermarkt spilaði kappinn flesta leiki fyrir AEL Limassol á Kýpur eða 135 talsins.
Sem stendur er markvörðurinn þó samningslaus og virðist gott gengi á HM hafa gert það að verkum að hann sé að fara semja við það sem yrði hans félag til þessa. Slúðrið segir nefnilega að Lionel Messi og félagar í Inter Miami ætli sér að sækja Vozinha.

Sama hvað því líður er ljóst að Vozinha er kominn í fámennan hóp markvarða sem verða hálfgerðar költhetjur á HM. Ætli besta dæmið um slíka hetju sé ekki Guillermo Ochoa, markvörður Mexíkó. Hann lagði hanskana á hilluna eftir að Mexíkó féll úr leik gegn Englandi í 16-liða úrslitum. Alls lék hann 153 A-landsleiki frá 2005 til 2026. Þá má bæta því að hans síðasta félag á ferlinum var AEL Limassol í Kýpur.

Aðrar költhetjur eru svo til að mynda Yassine Bounou sem lék hreint frábærlega með Marokkó á HM í Katar árið 2022. Mögulega er ákveðin vanvirðing við mann sem lék lengi vel í La Liga á Spáni að kalla hann költhetju en hann mun aldrei lesa þetta svo það er óþarfi að stressa sig á því.
Annar maður sem hefur átt góðan feril en varð bæði költ- og þjóðarhetju á HM 2022 er Emi Martínez, markvörður Argentínu. Án hans hefði Messi aldrei orðið heimsmeistari og hann sjálfur væri eflaust ekki enn í markinu hjá Aston Villa.
Svisslendingurinn og kyntáknið Yann Sommer er svo annar markvörður sem var alltaf magnaður á stórmótum en var lengi vel fastur í Borussia Mönchengladbach, miðjumoðs liði í efstu deild Þýskalands. Mögulega var hæðin að flækjast fyrir þeim sem skoðuðu Sommer en hann er „aðeins“ 1.83 metri á hæð.
Árið 2023 gekk hann hins vegar til liðs við Bayern München þar sem Manuel Neuer var meiddur. Þaðan fór hann svo til Inter í Mílanó á Ítalíu og hefur verið stórkostlegur allar götur síðan. Hann verður þó alltaf hluti af költhetju-hópnum.
Ef við förum svo alla leið til Rússlands sumarið 2018 er aðeins einn maður sem kemur til greina að ræða. Það er leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson sem varði vítaspyrnu frá Messi sjálfum. Í seinni tíð væri það varla fréttnæmt að Messi klikki á víti enda þegar brennt af tveimur á HM í sumar. Alls hefur hann brennt af 34 vítaspyrnum af 150 sem hann hefur tekið á ferlinum.
Við tökum hins vegar ekkert af okkar manni enda var varslan mögnuð sem og frammistaða hans í 1-1 jafnteflinu gegn Argentínu. Svo góð að hann er költhetja í dag.

TENGT EFNI
Inter Miami vill Vozinha - Rogers í forgangi hjá Arsenal
Sama hvað því líður er ljóst að Vozinha er kominn í fámennan hóp markvarða sem verða hálfgerðar költhetjur á HM. Ætli besta dæmið um slíka hetju sé ekki Guillermo Ochoa, markvörður Mexíkó. Hann lagði hanskana á hilluna eftir að Mexíkó féll úr leik gegn Englandi í 16-liða úrslitum. Alls lék hann 153 A-landsleiki frá 2005 til 2026. Þá má bæta því að hans síðasta félag á ferlinum var AEL Limassol í Kýpur.

TENGT EFNI
Ochoa hættur í fótbolta (Staðfest)
Aðrar költhetjur eru svo til að mynda Yassine Bounou sem lék hreint frábærlega með Marokkó á HM í Katar árið 2022. Mögulega er ákveðin vanvirðing við mann sem lék lengi vel í La Liga á Spáni að kalla hann költhetju en hann mun aldrei lesa þetta svo það er óþarfi að stressa sig á því.
Annar maður sem hefur átt góðan feril en varð bæði költ- og þjóðarhetju á HM 2022 er Emi Martínez, markvörður Argentínu. Án hans hefði Messi aldrei orðið heimsmeistari og hann sjálfur væri eflaust ekki enn í markinu hjá Aston Villa.
Svisslendingurinn og kyntáknið Yann Sommer er svo annar markvörður sem var alltaf magnaður á stórmótum en var lengi vel fastur í Borussia Mönchengladbach, miðjumoðs liði í efstu deild Þýskalands. Mögulega var hæðin að flækjast fyrir þeim sem skoðuðu Sommer en hann er „aðeins“ 1.83 metri á hæð.
Árið 2023 gekk hann hins vegar til liðs við Bayern München þar sem Manuel Neuer var meiddur. Þaðan fór hann svo til Inter í Mílanó á Ítalíu og hefur verið stórkostlegur allar götur síðan. Hann verður þó alltaf hluti af költhetju-hópnum.
Ef við förum svo alla leið til Rússlands sumarið 2018 er aðeins einn maður sem kemur til greina að ræða. Það er leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson sem varði vítaspyrnu frá Messi sjálfum. Í seinni tíð væri það varla fréttnæmt að Messi klikki á víti enda þegar brennt af tveimur á HM í sumar. Alls hefur hann brennt af 34 vítaspyrnum af 150 sem hann hefur tekið á ferlinum.
2 - Lionel Messi is the first player in World Cup history to miss two penalties at a single edition (excluding shootouts).
— OptaJoe (@OptaJoe) July 7, 2026
Shock. pic.twitter.com/PThOcWlcat