Fotbolti.net
06.08.21 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fram fær tvo leikmenn (Staðfest)

Fram er í baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Fram er í baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fram hefur bætt við sig tveimur leikmönnum fyrir átökin sem eru framundan í 2. deild kvenna.
„Meistaraflokkur FRAM kvenna í knattspyrnu eru í bullandi baráttu um sæti í úrslitakeppni sem gefur möguleika á að komast upp um deild. Þá þýðir ekkert að slaka á svo félagið nýtti félagaskiptagluggann til að styrkja sig fyrir átökin," segir í tilkynningu Fram.

Félagið fékk til liðs við sig sóknarmennina Rachel Van Netten og Shianne Rosselli. Báðar koma að láni út tímabilið.

Rachel er tvítugur sóknarmaður frá Hollandi. Hún hefur frábært 'touch' og góða boltameðferð ásamt því að búa yfir miklum leikskilningi og öflugum skotfæti. Hún hefur reynslu úr hollensku deildinni þar sem hún spilaði með VV Alkmaar. Hún kemur til Fram að láni frá Aftureldingu út tímabilið. Hún gekk í raðir Aftureldingar fyrr í sumar en hennar krafta er ekki óskað þar.

Shianne er 24 ára gömul frá Bandaríkjunum. Hún er fyrst og fremst kantmaður en getur spilað fremst líka. Flink, hröð og með gott markanef. Hún kemur til Fram að láni frá FH út tímabilið.

„Fram býður þær báðar velkomnar til liðsins og við hlökkum til að sjá þær á vellinum."

Fram er í fjórða sæti 2. deildar. Efstu fjögur lið deildarinnar fara í úrslitakeppni um sæti í Lengjudeild kvenna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.