Fotbolti.net
06.08.21 - 21:40
Victor Pálsson

Messi skrifar undir tveggja ára samning í næstu viku - 25 milljónir punda í árslaun

Messi skrifar undir tveggja ára samning í næstu viku - 25 milljónir punda í árslaun
Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi er nálægt því að ganga í raðir Paris Saint-Germain á frjálsri sölu. Sky Sports greinir frá í kvöld.
Messi er án félags þessa stundina en hann hefur yfirgefið lið Barcelona þar sem hann lék allan atvinnumannaferilinn.

Sky segir að Messi muni skrifa undir tveggja ára samning við PSG í næstu viku og fær 25 milljónir punda í árslaun eftir skatt.

Það eru laun sem Barcelona einfaldlega gat ekki borgað en liðið er í erfiðri stöðu fjárhagslega.

Samkvæmt fréttinni þá er einnig möguleiki á einu ári til viðbótar og gæti Messi leikið í Frakklandi næstu þrjú árin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.