06.08.21 - 19:03
Victor Pálsson
Romero kominn til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Christian Romero er genginn í raðir Tottenham frá liði Atalanta á Ítalíu.
Þessi félagaskipti voru tilkynnt nú í kvöld en Romero var valinn besti varnarmaður Serie A á síðustu leiktíð.
Tottenham lagði mikið í að tryggja sér leikmanninn og kostar hann 42 milljónir punda.
Romero er 23 ára gamall Argentínumaður og mun klæðast treyju númer fjögur á komandi leiktíð.
Hann spilaði 42 leiki með Atalanta á síðasta tímabili.
Enska úrvalsdeildin hefst þann 13. ágúst næstkomandi með leik Brentford og Arsenal.