Fotbolti.net
06.08.26 - 19:26
Brynjar Ingi Erluson

Frábærar fréttir fyrir Tottenham

Frábærar fréttir fyrir Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Enskir fjölmiðlar greina frá því að hollenski miðvörðurinn Micky van de Ven sé nálægt því að framlengja samning sinn við Tottenham.
Van de Ven hefur verið í hópi bestu varnarmanna ensku úrvalsdeildarinnar síðan hann kom til Tottenham frá Wolfsburg árið 2023.

Barcelona og Liverpool fylgdust náið með stöðu Hollendingsins í sumar á meðan óvissa ríkti um framtíð hans. Nú stefnir hins vegar allt í að hann skrifi undir nýjan samning á næstu vikum.

Viðræður Tottenham og Van de Ven eru langt komnar. Roberto De Zerbi, stjóri liðsins, átti stóran þátt í að sannfæra hann um að vera áfram og gerði honum ljóst hversu mikilvægur hluti hann er af framtíðaráformum félagsins.

Það var alltaf í forgangi hjá hinum 25 ára gamla Van de Ven að framlengja við Tottenham og vonast báðir aðilar til að ganga frá samningnum fyrir lok mánaðarins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.