Fotbolti.net
06.08.26 - 15:12
Elvar Geir Magnússon

Landsliðsmaður Úganda myrtur

David Owori.

David Owori.

Canon

Mynd: SC Villa

David Owori, sem var landsliðsmaður Úganda, lést af sárum sínum eftir að ráðist var á hann af þjófum sem ætluðu að stela af honum farsíma og fleiru.

Owori veitti þjófunum mótspyrnu og þá var ráðist á hann. Einstaklingur sem átti leið hjá fann hann meðvitundarlausan og kom honum á sjúkrahús.

Þaðan var hann fluttur á annað sjúkrahús þar sem hann var síðar úrskurðaður látinn. Vitni segja árásarmennina hafa slegið Owori með gangstéttarhellum.
Owori var fyrirliði Sports Club Villa sem leikur í úrvalsdeildinni í Úganda. Hann lék með Vélez CF á Spáni og Utsiktens BK í Svíþjóð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.