Fotbolti.net
06.08.26 - 18:06
Brynjar Ingi Erluson

Leipzig gerði grín að Fabrizio Romano

Leipzig gerði grín að Fabrizio Romano
Canon

Mynd: RB Leipzig

Þýska félagið RB Leipzig mátti til með að gera grín að félagaskiptafréttamanninum Fabrizio Romano þegar félagið tilkynnti um söluna á Yan Diomande til Real Madrid.
Fyrir tæpum tveimur vikum setti Fabrizio Romano sitt fræga „Here we go!“ við félagaskipti Yan Diomande til Real Madrid.

Þýskir fjölmiðlar og stjórnarmenn Leipzig sögðu Romano hafa hlaupið á sig enda væri ekkert samkomulag í höfn á þeim tímapunkti.

Romano birti færsluna 26. júlí en félagaskiptin voru ekki staðfest fyrr en í dag. Í millitíðinni lenti hann í hörkurifrildi við Florian Plettenberg, fréttamann Sky í Þýskalandi.

Plettenberg sakaði Romano meðal annars um að birta færslur byggðar á líkum frekar en staðreyndum og setja „Here we go!“ við félagaskipti áður en þau væru frágengin.

Diomande endaði vissulega hjá Real Madrid en Leipzig gat ekki stillt sig um að skjóta á Romano þegar félagið kvaddi Fílabeinsstrendinginn í dag.

„Here we actually go!“ skrifaði Leipzig, sem mætti þýða sem: „Núna er það raunverulega klárt!“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.