Fotbolti.net
06.08.26 - 14:08
Innkastið

Himnasending fyrir Þór

Gyrðir er á láni frá KR út tímabilið.

Gyrðir er á láni frá KR út tímabilið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Frá því að Gyrðir Hrafn Guðbrandsson gekk í raðir Þórs á láni frá KR er liðið ósigrað og fengið sjö stig af níu mögulegum.

Liðið vann 1-0 sigur á Breiðabliki á þriðjudag og þar með fór úr botnsæti deildarinnar og situr Þór nú í 11. sæti. Liðið er jafnt á stigum og grannar sínir í KA með 15 stig en Þórsarar eru með töluvert lakari markatölu.
Sterkasta lið 17. umferðar - Freyr bestur á Þjóðhátíð
TENGT EFNI

Sterkasta lið 17. umferðar - Freyr bestur á Þjóðhátíð

„Gyrðir er himnasending fyrir þá. Allt í einu eru Þórsarar komnir með mann sem öskrar og stýrir mönnum. Þá hefur bara vantað þannig mann. Hann smellpassar inn í þetta,“ sagði Valur Gunnarsson í Innkastinu.

Þar var rætt um að Gyrðir komi með þau karaktereinkenni sem búist var við af Aroni Einari sem yfirgaf félagið eftir aðeins einn leik.

„Gyrðir getur alveg tekið þetta líka. Siggi Höskulds þekkir hann út og inn. Hann veit nákvæmlega hvernig er hægt að nota hann,“ kom sömuleiðis fram í Innkastinu.

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.