Fotbolti.net
06.08.26 - 17:40
Brynjar Ingi Erluson

Vini Jr verður áfram hjá Real Madrid - Gerir sex ára samning

Vini Jr verður áfram í Madríd

Vini Jr verður áfram í Madríd

Canon

Mynd: EPA

Vinicius Junior hefur samþykkt nýjan sex ára samning hjá Real Madrid, en þetta segja þeir David Ornstein og Fabrizio Romano á X.
Arsenal hafði mikinn áhuga á Vini Jr og beið átekta á meðan Brasilíumaðurinn og umboðsmenn hans ræddu við stjórnarmenn Real Madrid.

Viðræður um nýjan samning hafa staðið yfir í eitt og hálft ár en lengi var langt á milli aðila í launamálum. Um tíma leit út fyrir að Vini Jr myndi yfirgefa Real Madrid og var hann sagður opinn fyrir því að ganga til liðs við Arsenal.

Staðan breyttist hins vegar eftir jákvæða fundi síðustu daga. Real Madrid hækkaði tilboð sitt og hefur Vini Jr nú samþykkt það.

Hann mun skrifa undir nýjan sex ára samning og er búist við að Real Madrid staðfesti tíðindin á næstu dögum.

Vini Jr er 26 ára gamall og hefur leikið með Madrídingum undanfarin átta ár. Á þeim tíma hefur hann unnið fjórtán titla, þar á meðal Meistaradeildina í tvígang.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.