Fotbolti.net
06.08.26 - 10:50
Innkastið

Stuðningsmenn KA láta mikla óánægju í ljós

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Hver er að fara að rífa þetta upp? Þetta lið er bara líklegast til að falla af þessum liðum sem eru þarna niðri núna," segir Valur Gunnarsson í Innkastinu þar sem rætt er um stöðu KA.

KA tapaði 3-0 gegn Keflavík í gær og er markatölunni frá fallsæti, sem er langt frá væntingum eftir það sem hefur verið lagt í þetta lið. Í Innkastinu er frammistaða leikmanna KA rædd.

„Þetta er grafalvarlegt mál. Það stefnir ekki í neitt annað en í Lengjudeildina og þá þarf að fara í alvöru naflaskoðun," segir Haraldur Örn Haraldsson, stuðningsmaður KA.
Fótbolti.net ræddi við mann fyrir norðan í dag sem segir að mikil ólga sé meðal stuðningsmanna KA en nokkrir af þeim hafa ekki farið leynt með óánægju sína. Þar á meðal er Ólafur Pálsson en færsla sem hann skrifaði á Facebook hefur vakið mikla athygli.

Þar segir hann frá því að færslur hafi verið fjarlægðar á stuðningsmannasíðu KA þar sem hann gagnrýndi liðið

„Þetta er bara einhver norður-kóresk stjórnun," segir Valur í Innkastinu en umrædda færslu má sjá í heild hér að neðan.



Ólafur Pálsson á Facebook:
Ég er veikur. Veikur KA-maður eins og þið vitið sem mig þekkið. Karlalið KA í fótbolta er á vondum stað en ég óttast að vandamál KA sé ekki eingöngu bundið við leikmannahópinn, liðið og umgjörðina í kringum það.

Ég skrifaði nokkrar línur á stuðningsmannasíðu KA áðan. Spurði hvort liðið væri að æfa saman á milli leikja því það er ekki að sjá á spilamennskunni. Ég sagði að okkur hafi tekist að búa til líklega verst spilandi liðið í deildinni úr prýðilegum leikmönnum. Ég sagði að liðið væri á leiðinni í Lengjudeildina að ári og sagði að nú væri kominn tími til að vakna.

Færslan mín var tekin út. Færsla á stuðningsmannasíðu sem lýsti skoðun minni á hlutunum var tekin út.

Þá spurði ég í annarri færslu hvort það væri í alvörunni ritskoðun á téðri síðu. Hvort fólk fengi í alvöru ekki að tjá skoðanir sínar á KA-liðinu á stuðningsmannasíðu KA stofnaðri af stuðningsmanni KA úti í bæ.

Færslan var einnig tekin út.

Finnst stjórnendum síðunnar þetta í lagi? A.m.k. einn ykkar ber ábyrgð á þessu rugli.

Ef það má ekki gagnrýna verður aldrei framþróun. Það þarf ekkert að vernda þessa stráka, þeir fá borgað fyrir að spila leikinn og eru ekki yfir gagnrýni hafnir, ekki frekar en þjálfarinn, stjórnin, stuðningsmennirnir eða þið.
KA er markatölunni frá fallsæti

KA er markatölunni frá fallsæti

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik17+829
5Keflavík17-522
6Valur17-719
7ÍA17-819
8Stjarnan17-1118
9ÍBV17-916
10KA17-1115
11Þór17-2415
12FH17-1114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.